Ég var kannski of fljót á thví ad fagna bata...
Thannig fór ad ég hélt áfram ad vera veik og nádi mér eiginlega ad fullu í midjum desember = 1 og hálfur mánudur veik
Sem thýddi sleppa skóla í um 2 vikur samtals, engin hreyfing og mikid bordad = aukakíló
Thetta olli líka 7 spítalaferdum
Á einni spítalaferdinni urdum vid vitni af hundi sem smygladi sér inn á spítalann og vorum ad velta thví fyrir okkur hvort hann vaeri forvitinn eda sárvantadi kannski bara laeknishjálp og var ad reyna ad redda sér. Spurning.
Thess má geta ad á Íslandi hef eg adeins 1x farid a spitalann og thad var thegar ég festi perlu i nefinu minu thegar eg var litil og vitlaus. Hef aldrei verid jafn thakklát fyrir hreyfingu og laerdi margt á thessum veikindum
Thad sem maetti segja ad hafi bjargad Nóvember mánudi var heimsókn Thorbjorgu Evu sem ég kynntist í Buenos Aires á komunámskeidinu hérna í Ágúst. Hún býr núna í Tucumán, meira í nordri.
Held ég haldi sama formi og í seinasta bloggi; thad er ad flokka thad sem ég vil segja ykkur frá. Erudi ekki sammála ad thad sé adgengilegra??
Sérstaklega thar sem ég hef frá MOOORGU ad segja!
Eva í Mendoza
Ég var svo heppin ad fá hana vinkonu mina Thorbjorgu Evu (víst kollud Eva hérna í Argentinu) sem eg kynntist á komunámskeidinu í Buenos Aires í heimsókn til mín hérna í 5 daga. Um leid og Eva steig út úr rútunni var ekki stoppad ad tala allan daginn og thad á ÍSLENSKU. Ekkert smá yndislegt ad geta sagt allt sem madur vill koma frá sér! Vorkenndi samt fjolskyldunni smá thar sem thau skildu ekki neitt og voru orugglega voda forvitin ad vita hvad vid vaerum alltaf ad tala um. Vid thýddum samt vid og vid fyrir thau. Thessa daga upplifdi ég dálítid Mendoza med augum túristans.
Vid ákvádum ad nýta dagana mjog vel thar sem ekki mikill tími og margt ad gera hérna í Mendoza.
Á fimmtudeginum fórum vid í Palmares sem ég sagdi frá í seinasta bloggi. Vid tókum straetó thangad og thad i fyrsta skiptid mitt. Á leidinni strondudum vid á gotunni umkringdar nýmalbokudum veginum med um 20 blístrandi verkamenn sem voru ad tala um ad taka myndir og voru frekar creapy. Urdum smá smeikar, sáum ekki annad i stodunni en ad snua vid og labba um 10 metrum nálaegt thessum verkamonnum med simana a lofti og their sporudu ekki hrópin. Vid sluppum thó óhultnar.
Endudum sidan i orugga Palmares. Thad voru gerd gód kaup, spjallad vid strák sem vann í Levi`s og baud okkur sídar í partý um kvoldid (ekki sens ad vid faerum, en tokum vid fripassanum med bros á vor), farid í bíó og keypt naest minnstu staerdina af poppi sem var bara alls ekkert litil og sidast en ekki síst endudum vid daginn á gúrmet veitingarstad thar sem vid fengum okkur góda pastarétti og hvítvín. Thjónanir stordu alveg hrikalega thegar ég var búinn med stóra spagetti réttinn minn og var byrjud á pastanu sem Eva kláradi ekki. Sjúklega bordar thessi mikid. Í eftirrétt var sídan valid eitthvern ávaxta og ísrétt :P
Á fostudeginum kíktum vid í dýragardinn. Vorum allan tímann ad leita af fílunum en ad sjálfsogdu voru their seinastir. Tókum myndir af ollum dýrunum og aftur lentu 2 ljoshaerdu stelpurnar í ofsóknum thegar hópur skólastráka labbadi framhjá og tók myndir á símann sinn af okkur. Lobbudum sidan hrikalega vegalengd til ad enda í almenningsgardinum (parque) og fengum okkur ad borda líka thennan stóra hamborgara. Og já veit ekki hvort ég hafi minnst á thad ádur en hérna er til KOKTEILSOSA!! Á leidinni fórum vid sídan fram hjá thessum hópi stráka/manna sem madur á ad vara sig á. Ég var svo utanvid mig ad ég fattadi ekki ad ég var med myndavélina mína á lofti og their fáranlega nálaegt! enda vard eg stjorf thegar eg fattadi thetta og var ekki lengi ad troda henni í veskid. Their gerdu samt ekki neitt thar sem logreglan var ekki langt frá.
Um kvoldid fórum vid sídan út á lífid.
Á laugardeginum voknudum vid snemma, sóttum Valentin vin minn og keyrdum í midbaeinn á túristaskrifstofu. Af hverju? júú thvi vid aetludum ad fara i Canopy í fjollunum sem kallast Potrerillos!
Bordudum ógedslegustu samloku sem eg hef bordad á aevi minni, var svong svo eg pindi hana i mig med majonesi ojjj. Ekkert smá gaman í Canopyinu thó ég hefdi thurft ad passa mig útaf veikindunum og thurfti thví ad laeknisrádum ad fara med einum guideinum í somu ferd á medan hinir stjornudu hradanum sjalfir. Samt hrikalega gaman ad geta bara slakad a og tekid myndir og myndbond thegar vid vorum i loftinu. Slapp vid stressid sem hinir fengu thegar vid fórum upp í haedsta punktinn. Gaman ad segja frá thví ad guideinn thekkti líka íslending sem heitir Reynir og vinnur med River Rafting. Litill heimur. Fórum sídan á veitingarstadinn sem var stadsettur tharna í fjollunum, ekkert spes matur en sjuklega gott flan (búdingur) med dulce de leche. Á naesta bordi var ad sogn Valentin einn af landslidsmonnum Argentinu í rugby ad borda ásamt lidsfelogum sinum ur minna thekktra lidi.
Um kvoldid fórum vid Eva í fyrsta quince okkar (15 ára afmaeli). Til thess ad lýsa quince sem best er haegt ad segja ad thetta er á milli thess ad vera gifting og ferming. Fjolskyldan gerir einhvernskonar myndband saman sem synt er i veislunni, veggirnir voru skreyttir med studiomyndum af afmaelisbarninu, thad var ísvagn á stadnum ásamt booztbar fyrir tha hollari og thjonar gangandi med bakka af konfekti. Donsudum adeins og smokkudum ad sjalfsogdu allt sem var i bodi ;)
Á sunnudeginum fórum vid á fincha (sveitabaerinn/sumarbustadurinn) okkar. Thetta var fyrsti dagurinn sem vid notudum sundlaugina thetta sumarid. Fórum í sólbad og hentum okkur út í laugina thegar sólin var byrjud ad steikja okkur of mikid. Thad fann eitthver TARANTULU og veiddi hana i krukku nálaegt sumarhusinu, eda thar ad segja í skóginum á lódinni okkar!! frétti líka ad thad eru víst kongulaer herna sem geta drepid! thegar eg kem til islands verd eg klarlega ekki lengur hraedd vid thaer litlu saklausu. Eftir yndislegan sólríkan dag var sídan endad med gómsaetu asado!
Um kvoldid fórum vid sídan á veitingastad til thess ad snaeda sídustu kvoldmáltídina. Bordudum alveg sjuklega mikid og ekkert smá gott! :P
Á mánudeginum skelltum vid okkur sídan nidur í midbae. Leitudum ad mate fyrir Evu og fundum yndislega súkkuladi búd med nammi sem minnti á nóa kropp og súkkuladihúdadar almendrur. Tharna aetla ég sko aftur! Endudum sidan a langthradum Subway og ekki verra ad túnfiskbáturinn var bátur dagsins (hérna er bátur dagsins fyrir alla daga vikunnar i stad fyrir bát mánadarins eins og á íslandi). Á leidinni heim roltum vid plaza independencia sem er med fullt af solubásum sem selja alls konar hluti. Finnst thetta rosa kruttlegt og tha serstaklega á kvoldin med gosbrunninn i gangi og allt mannlifid. Eg og Eva skiptumst á vinabondum sem vid keyptum tharna hjá einni indaelli tannlausri konu (eda Eva var hun ekki tannlaus? hun er thannig i minningunni allavegana)
Keyptum sídan hráefni í ameriskar, vorum med sma dramasenu í súpermarkadinum og bokudum ad lokum thessar yndislega gódu amerisku smákokur. Eva tók med sér i nesti og fyrir fjolskylduna sína í Tucuman og keyrdum upp á rútustod. Thar var kvatt og soknudurinn kom strax enda búnar ad vera saman heila 5 daga! Takk fyrir heimsóknina Eva!
SUSHI
Loksins! Var búin ad vera án sushi í um 3 og hálfan mánud og var byrjud ad sakna thess alveg hrikalega mikid. Fórum vid nokkrir vinir ásamt systur minni og stelpu frá Austurríkjum sem er skiptinemi í Misiones og ég kynntist deginum ádur í gegnum Valentin. Aetludum upphaflega á stad sem heitir Sushi Club en sáum sídan hversu dýr og elegant hann var ad vid endudum a Itamae sushi. Ég fer samt pottthett á Sushi Club bara á afmaelinu mínu eda á sérstokum degi! Á víst ad vera rosa gott sushi, get ekki látid thad framhjá mér fara. Thad var samt bara voda gott á Itamae, betra en a sushi train – meira urval.
Audunn í Mendoza
Í midjum desember fékk ég heimsókn frá odrum skiptinema hingad til Mendoza, honum Auduni. Byrjudum ad hressa upp á jólastemninguna med thví ad skreyta gamla gervijólatréid í stuttbuxum, án jólatónlistar, í hitanum. Gaeti ekki hafa verid ójólalegra haha!
Skelltum okkur sídan í Palmares, fengum thó far í thetta sinn og lentum thví ekki í ofsóknum verkamanna. Roltum hringi í dýru búdunum sem endadi med ad árangra eitt belti fyrir hann Audunn. Rákumst á laekninn minn, sem ég er búin ad fara alveg thónokkud oft til núna upp á sídkastid. Samt fyndid hvad ég thekkti hann ekki fyrst án laeknissloppsins. Var ekki alveg ad kveikja hver thetta var alveg bara mjog lengi. Endudum sídan á ad setjast nidur fyrir pizzu og pasta. Smakkadi í fyrsta sinn palmito (eh graenmeti eda eh dót af trjám eda eh whoo knows) en thad er til gamans ad geta ad hundurinn minn hérna heitir thessu skemmtilega nafni. Er búin ad komast ad thví núna ad palmito og kokteilsósa (Salsa Golf) er alltaf saman! Og er thá engin undantekning. Alltaf.
Daginn eftir fengum vid sídan hjólin lánud og tókum smá hjólatúr um nánasta hverfid (thar á medal kíktum vid til Paraguay, samt bara gatan sko) thad var alveg gódur hiti og endudum í gódu spjalli í Mailoh ísbúdinni. Hún er alveg frekar í dýrari kantinum og mjog gód en tókum mikla áhaettu thar sem seinustu 2 skipti sem ég hafdi farid vard ég veik daginn eftir.. og Valentin vinur minn líka..
Termas Cacheuta er eitthverns konar vatnsskemmtigardur upp í fjollunum. Alveg hrikalega fallegu umhverfi! Samt ekki thessi týpíski vatnsrennibrautagardur heldur meira lagt áherslu á heita potta, kaldar laugar, litlar rennubrautir og sídan er fake á sem er haegt ad láta sig fljóta í. Tharna eyddum vid Audunn og Aldana (eldri systir mín) ollum deginum. Keyptum sídan alls konar smoothies gerda úr ferskum ávoxtum. Ég valdi persónulega mango og ferskju. Hrikalega gott! Samt alveg merkilegt hvad folk hérna tharf ad baeta sykur í allt! Alveg baetti afgreidslustúlkan um 2 matskeidum út í. Var samt orugglega betri fyrir vikid
Sídan var brunad med rútunni heim eftir dálítinn misskilning og extra gongu.
Komum heim sólbrennd (og saet ad sjálfsogdu) og klaeddum okkur í betri fotin og skelltum okkur á Aristedes (svipad daemi og Laugavegurinn). Settumst nidur og bidum í heila 3 klst eftir vinkonu minni og vin hennar sem aetludu ad hitta okkur. Óstundvísi er ekki óalgengt hérna. Fórum sídan eitthvad ad dansa eftir á.
Á laugardeginum var sídan tekid hjólin aftur og forum upp á Cerro de la Gloria, skodudum vel styttuna á toppnum, tókum túristamyndir ofl. Fórum sídan út á lífid um kvoldid. Komst ad thví ad Audunn talar alveg frábaera thýsku og hann laerdi hana adeins á thví sem thýska vinkona hans í Paraguay kenndi honum. Gat talad fullt vid Valentin vin minn sem er frá Sviss og talar thýsku. Skildi samt voda lítid í theirra umraedum. Sheisse, Auf Wiedersehen, Ich liebe dich, Ich heisse Natalia, Gruss Dich og kugleschreiber er thad eina sem situr eftir í mér eftir árskennslu frá Elísabetu í Digranesskólanum. Kannski ég plati Valen til ad kenna mér thýsku. Djók………… spaenskan er nóg.
Sunnudagar eru rosalega rólegir hérna. Núna í sumar forum vid langflesta sunnudaga í sumarhúsid okkar og var engin breyting á thennan sunnudag. Hrikalega frískandi med sundlaug sem haegt er ad stinga sér í thegar hitinn er óbaerandi í sólbadinu. Fengum líka thetta fínasta asado, fórum á hestbak, skodudum sveitina, spjall um 32 pesos (er thad enn inni í myndinni Audunn??) og Audunn spiladi á gítarinn fyrir okkur og baettist ekki bara Folklore gítarleikari vid í spilid sem býr á naesta bae. Hrikalega kósý.
Fórum líka í vínsmokkun! Thad var svona eiginlega bara óvart fyrir mig útaf tungumálaordugleikum ad ég vissi ekki hvad bodega (thar sem vínid er framleitt) thýddi. Gerdi rád fyrir ad their Audunn og pabbinn vaeru ad tala um eitthverja boutique til ad kaupa vín í. Sídan endudum vid bara í thessari fínustu bodega. Norton. Hrikalega fallegt ad innan ad jafnt og utan. Graent gras og fullkomnunarárátta fyrir utan. Ad innan var á einstaka stodum skreytt med kristolum thar sem núverandi eigandi Norton er skartgripakóngurinn Swarovski. Skodudum okkur um og endudum sídan alveg óvaent í vínsmokkun fyrir kanil og skit adeins 15 pesos a manninn = 400 kr. Fórum einn hring thar sem vínid er framleitt undir leidsogn starfsmanns og ég sver thad ad ég skildi meira í spaenskunni hans heldur en enskunni hans. Kannski samt thví ensku hikordin fóru í mig auk takmarkadra enskunnar hans. Rosa gaman ad sjá hvernig thetta gengur fyrir sig. Endudum sídan í vínsmokkun thar sem hann fór yfir hvernig vid faerum ad thví ad finna sterkara bragd af raudvíninu, hvenaer thad sé eldra og fleira og ad sjálfsogdu smakka ;) mjog gott. Thad var sidan ad sjálfsogdu gengid út med tvo poka. Annan med freydivíni og hinn med svipudu raudvíni og vid smokkudum. Tókum sídan lengstu straetoleid all time til baka.
Á sama tíma var franskur vinur minn sem spilar gítar mjog vel eins og Audunn ad bída eftir okkur nidur í midbae greyid thar sem vid vorum búin ad gera okkur mót en ekki fengid stadfest hjá honum thegar vid forum út úr húsi til ad fara á vínakurinn og ég skildi símann eftir heima..
Um kvoldid var sídan útskriftarveisla Bonetti (skólinn minn). Sabrina og Valentin komu med okkur Audunni og thid getid imyndad ykkur hvad stelpurnar héldu evrópsku strákunum uppteknum allt kvoldid. Annars var bara dansad og kannski of mikid thar sem ég skildi toskuna mina eftir á gólfinu eins og margar stelpurnar og fór ad dansa. Eftir dágódan tíma hugsa ég skyndilega: Nei okey hvar er taskan mín og byrjadi ad leita og leita og leita ásamt hjálp vina minna og rosalega saetu módeli. Fundum sídan toskuna, án símans míns , pening vinkonu minnar og tyggjós. Thetta var samt lukka í ólukku thar sem ekki var stolid debetkortinu minu, gleymdi myndavelinni heima og var nýnýnýbúin ad setja allar myndirnar inn á tolvuna sem ég hef aldrei ádur gert! Fór thví ótrúlega svekkt heim.
Audunn á vin sem fór sem skiptinemi fyrir nokkrum arum hingad til Mendoza. Eitthvern daginn kíktum vid í heimsókn til fósturfjolskyldunnar hans. Alveg yndaelasta folk og spjolludum vid, kíktum í Central Park hérna sem ég hafdi ekki enn farid I og kíktum á safn í nágrenninu. Systkinin voru líka svo indael seinna um kvoldid ad bjoda okkur I asado til sin. Keyptum kjot og vin og einn bródirinn kenndi mér ad gera asado! Bordudum sídan thetta hrikalega góda asado og strákarnir spiludu á gítar og toludu um bíómyndir thar sem bádir voru búnir ad laera thad í háskólanum og vissu thví nokkud mikid.
Ég og Audunn ásamt Aldana hjóludum til Chacras, hverfi sem margir eiga sumarhús í, fengum okkur vatn og ís. Vá hvad ég elska ad fara í svona hjólaferdir. Langar eiginlega bara ad kaupa mitt eigid hjól til thess ad geta oft bara stungid af til Palmares, Chacras eda uppá fjollin.
Vid ákvádum ad fara seinasta kvoldid út ad borda sushi. Urdum reyndar fyrir odru óhappi. Audunn gleymdi veskinu sínu á stadnum og thar á medal farmidanum til Paraguay.. Fyrst alveg smá sjokk en einn thjónninn fann víst veskid og leitadi sídan af Auduni á facebook og hafdi samband og gerdum okkur mót daginn eftir og fengum thví veskid í hendurnar sama dag og heimferdin var. Heppni.
Aetludum ad fara í fjallgongu upp ad grunni Aconcagua (haedsta fjalli Ameriku) sem er um dagsganga, hefdum viljad 3 daga gongu eda eitthvad álíka en kostadi líka thennan svaka pening. Thví midur vard ekkert úr henni á endanum thar sem Audunn thurfti ad snúa aftur til Paraguay í útskriftina sína og thurftum leyfi med dagsfyrirvara til ad mega fara thessa gongu. Á víst ad vera hrikalega fallegt, langar rosa ad fara.
Rosa gaman ad fá thig í heimsókn Audunn alltaf velkominn aftur eins og thú veist, alltaf haegt ad eiga fjallgonguna inni.
Kvatt góda vini
Núna á morgun, 15 janúar, munu um 6 skiptinemar hérna í Mendoza snúa aftur til fodurlands síns. Thess vegna var haldin smá kvedjuveisla hérna eitt laugardagskvoldid hjá AFS. Bordudum veitingarnar, fengum ad vita hver frá Mendoza vann skiptinemaár til Thýskalands FRÍTT (systir mín tók thátt og var komin í úrslit, vann thví midur ekki..), fengum fréttir frá theim skiptinemum sem búa meira út í sveit Mendoza, spjolludum og hlógum en vissum samt oll innst inni ad brátt vaeri stór hluti farinn og miklar líkur ad vid sjáumst aldrei aftur á aevinni. Skrítid. Á thvaer gódar vinkonur sem eru ad fara, onnur byr i Bandaríkjunum og aetladi ad vera i ár en thurfti ad stytta i halft ar thar sem mamma hennar vildi ad hun klaradi skolann heima í USA svo hún fer núna, fyrr en vid oll héldum. Sídan er thad Sabrina. Bestabesta skiptinema-vinkona mín, hún er frá Thýskalandi og ef ekki bara besta vinkona mín hérna í Argentinu. Á eftir ad sakna hennar hrikalega mikid, en veit thó ad ég á eftir ad sjá hana aftur. Thýskaland er ekki svo langt i burtu og auk thess erum vid stadradnar ad heimsaekja hvor adra. Verdur samt leidinlegt ad hún muni ekki eyda restinni af dvolinni herna med mer.. Á sunnudeginum tók ég sídan Sabri med í fjolskyldusveitina og áttum frábaeran dag í sólbadi og sundlauginni.
All you can eat og tónleikar
Systir Valentin, Paula, átti afmaeli vikunni fyrir jól. Af thví tilefni fór fjolskyldan út ad borda, en thetta er ekkert smá fjolskylda - 7 eda 8 systkin minnir mig auk barna og svona. Ég var svo heppin ad fá ad fljóta med en hún er lika gód vinkona min. Veitingarstadurinn var ekki af verri gerdinni - ALL YOU CAN EAT. Borgadi sirka 1500 kr fyrir máltídina.
Okei thad sem var í bodi =
kínverskur, indverskur, sushi, asado, franskar, heilt hladbord af medlaeti og sósum, úrval af kokum og budingum, ís, pasta ad ollum gerdum, sjávarréttir, kjuklingur, ponnukokur med dulce de leche ad innan allt matreitt af kokkunum fyrir framan mann.
Ég fékk mér sjálf held ég um 5 diska, stútfulla og thetta var rosa got, aetla pottthett thangad aftur!
Systir mín hefur spilad gítar í thónokkur ár. Á hverju ári eru haldnir lokatónleikar ársins á stad nidur í bae thar sem allir nemendur skólans flytja lag saman, komu fram um 4, 5 “hljómsveitir” og verd bara ad segja ad ég var nokkud sátt med árangur systur minnar hérna. Tóku líka nokkur log sem ég thekki eda hef heyrt hana oft aefa heima.
Raud jól
Jólin í ár voru heldur betur med odru snidi en sídastlidin ár. Hérna er ekki eins mikid á gangi kringum jólin eins og gengur og gerist á klakanum. Engin jólalog (systur minar hlogu thegar eg sagdi theim ad vid hlustudum naestum allan desember mánud á jólalog), ekki bordad smakokur eda piparkokur í jólaundirbúningnum(smákokurnar eru sparadar til ad borda a adfangadag eda jóladag), lítid skreytt, dogunum eytt í stuttbuxum ad kafna úr hita óskad thess ad thad vaeri sundlaug í húsinu, varla talad um jólin eda jólagjafir. Hérna eru jólagjafirnar lika med miklu minna snidi. Thad er ekkert verid ad metast um hver fékk staerstu og flottustu jólagjofina, Iphone 4 eins og ég frétti ad hafi lent í morgum jolapokkunum á Íslandi í ár. Í rauninni gefa foreldrarnir ekki jólagjofina heldur er hun sogd vera frá jólasveininum.
Á adfangadagsmorgni héldum vid fjolskyldan til Cordoba, Rio Cuarto, thar sem vid aetludum ad eyda jolunum hjá systur pabbans og fjolskyldu hennar. Komum um hádegid. (Best ad baeta thvi inn ad jólaskapid var ekki enn komid! og thad á sjálfum adfangadegi)
Var adeins kaldara í Cordoba en Mendoza eda svo kalt ad ef vid aetludum ut um kvoldid thyrftum vid yfirhofn. Samt um 20 grádur. Ég hafdi bakad marensbotna í Mendoza ádur en vid fórum fyrir eina af uppáhaldskokunum mínum, marenskaka med karamellusósu og rjóma. Thetta var eftirrétturinn fyrir kvoldid. Thad var lítid ad gera svo ad ég og Cande forum nidur í bae ad leita af bordskreytingu sem gleymst hafdi i Mendoza (ekkert streeess) og kíkja í búdir. Já kaeru vinir thad var gjorsamlega ALLT opid klukkan 4 á adfangadegi. Fórum í eitthverjar búdir en endudum ad gera oll kaupin í gjafavoruverslun sem seldi bordskrautid og eg fann lika thennan fina strandarhatt fyrir Chile. Snerum heim. Skypeadi pabba, thórunni og Alexander, thar naest mommu, skula og co og Jónu Maríu og Diljá. Jólasturtan tekin, vard ad sleppa kirkjunni, aetladi ad fá ad kynnast hvernig messan sé hérna á adfangadag en hafdi ekki tíma í thetta skiptid.
Kvoldmaturinn byrjadi klukkan um 9.30/10 bordudum ágaetan mat, fylltan kjúkling med medlaeti og fleira og sídan var skálad á midnaetti med kampavíni, bodid upp á alls konar tegundir af hnetusmjorshnetum :P skotid smá upp flugeldum (já hérna er líka skotid upp á adfangadag) samt ekkert midad vid heima. Thau héldu ad thad vaeri ekkert um flugelda á Íslandi og voru heldur betur hissa thegar ég sagdi theim ad thad vaeri mun meira um thá heima.
Thá voru pakkarnir teknir upp, thar sem jólasveinninn hafdi sko komid pokkunum fyrir undir jólatrénu á medan allir fóru út ad skjóta. Hrikalega er hann oflugur thessi jólasveinn ad fara um alla Argentinu á thessum sama tíma og hlada pokkum undir jólatréid. Ég gaf fjolskyldunni minni Vilche geisladiskinn frá Monsters of Men, dagatal med myndum frá Íslandi, spilastokk og bók um jólasveinana okkar 13 (mjog merkilegt fyrir theim). Fraendfólkinu gaf ég sídan sudusúkkuladi og geisladisk med Mugison. Theim fannst súkkuladid gudgómlegt. Sídan var marenskakan bodin fram en allir voda saddir svo ég held ég hafi án djóks ein bordad meira en helming kokunnar og vid vorum um 12 manns.
Okei mér var sagt heima ad folk hérna í Argentinu border meira en á Íslandi. Hef samt aldrei fundid jafnmikid fyrir thvi ad ég bordi mikid. Alltaf tharf thad ad baetast inn í umraeduefnid hvad eg bordi mikid, samt allt í léttu djóki. En mér finnst almennt á Íslandi í veislum og afmaelum alltaf ýtt á eftir manni ad borda meira svo madur endar á ad vera sprakksaddur. Hérna finnst mér ég sjaldan fara sprakksodd frá matarbordinu. Fólk bordar meira á Íslandi en hérna eda allavegana skikinn í kringum mig á Íslandi meira en fólk i Mendoza.
Á jóladag var sídan tekid skype fengid risastórar fréttir sem ullu hrikalega miklum paelingum og sídan var tekid maratón í Hellcats, bordad afganga frá thví kvoldinu ádur og keyrt heim til Mendoza aftur. Jóladagur átti ad vera eytt í sundlauginni í upphafi en vedrid var vist ekki alveg nógu gott, undir 25 stiga hiti haha
Átti sídan algjora letidaga fram ad gamlárskvoldi, júú hittum tharna einn skiptinema frá Ítalíu sem var med kaerustuna sina alla leid frá Ítalíu í heimsókn í heila 2 mánudi! Lúxus!
Fórum nidur í midbae med thau og seinna um kvoldid forum vid út á lífid.
Vikunni fyrir nýja árid fór ég á hverjum morgni út ad skokka, lítid ad gera og svona. Á seinasta degi ársins var ég semsagt í sakleysi mínu ad skokka í almenningsgardinum. Hringurinn sem eg hef samt verid ad taka er á einum spotta úr leid, eda thar fara nokkrir bílar um odru hvoru og nokkrir á hjóli eda ad skokka eins og ég. Á thessum tímapunkti var nákvaemlega enginn tharna á thessum spotta. Jú nema hvad thad var einn lítill strákur um 9, 10 ára sem kom labbandi í áttina til mín, ég hélt hann vaeri bara ad krossa gotuna en thegar hann var kominn um metra frá mér tók hann upp hníf og sagdi mér ad gefa sér símann minn (heyrnatólin gáfu upp um ipodinn sem eg var med i fórum) ég var ekki hraedd, heldur brugdid, vorkenndi greyinu. Eftir ad endurtaka 3x ad ég vaeri ekki med neitt á mér (augljoslega med heyrnatolin í eyrunum samt) hugsadi ég um ad ég gaeti ekki látid hann fá Ipodinn, nýbuin ad vera raent símanum mínum, aetladi ekki ad vera alls laus. Svo ég ákvad ad taka á skarid. Held thetta hafi verid mjog mikil heppni og bestu adstaedur til ad vera hótad ad vera raent. Í fyrsta lagi ekki unglingur eda fullvaxna karlmadur sem hefdi jafnvel (samt frekar ólíklega) nád mér thegar ég spretti í burtu. Í odru lagi var ég í tilvolnum hlaupabúnadi til ad ná sem mesta hrada. Í thridja lagi thví um 100 metrum frá var kona sem ég sá thegar ég hafdi sprett nokkud i burtu og varadi hana vid svo strákurinn leitadi felustad inni í skóginum rétt hjá.
Jaeja thessi saga er sídan búin ad vera sogd ollu fólkinu sem vid hofum sest og bordad hádegismat med af ommunni. En alltaf sogd adeins rong og ég tharf thví alltaf ad leidrétta hana.
Gamlárskvold var sídan farid í mat til ommunar, voda rólegt og kósý, skáludum á midnaetti og fórum ad skjóta eitthvad smá upp. Eins og á adfangadag var bara svona ágaetlega mikid um flugelda, ekki eins mikid og heima. Seinna um kvoldid var ég sídan keyrd til Valen og Chary, spjolludum adeins vid frábaeru fjolskylduna theirra og hámudum í okkur eftirrétt og forum sídan út ad fagna nýju ári 2012!! Rosa skemmtilegt kvold, skemmtilegasta í langan tíma og minnisstaett.
Chile
Ferdinni til La Serena í Chile, strandbae sem er svaka vinsaell hjá íbúum Mendoza, var haldid adfaranótt 2 desember. Geri mér ekki grein fyrir hvad er langt frá Mendoza ad La Serena thar sem vid stoppudum um nóttina fyrir pabbann ad leggja sig og sídan bidum vid heillengi í rod til ad komast í gegnum landamaerin. Var pinu vesen med pappírana thar sem ekki er sagt nakvaemlega ad eg megi fara til Chile, bara oll lond sem eiga landamaeri ad Argentinu. Samt ekkert drama. Komum um hádegi 2 desember, tókum uppúr ferdatoskunum og byrjudum fyrsta strandardaginn.
Vorum rosa heppin med vedur. Fengum 2 daga af 8 sólríka og yndislega bjarta daga. Hinir voru skýjadir en vid forum samt alla daga á strondina og stingdum okkur í sjóinn. Nú hef ég farid á nokkrar strendur í Evrópu en mér fannst thessi odruvisi. Tharna eru oldurnar naer landi, staerri og held minna haettulegri. Fórum thví alltaf ad stinga okkur undir oldurnar og ad láta thaer bera okkur ádur en thaer brotnudu á strondinni, thetta fannst mer sjuklega gaman. Á heitustu dogunum var thó mikid um thara sem losnadi frá og sast á yfirbordid svo thessa daga var fulllt af raudum thara í hárinu mínu. Bara eins og hafmeyja.
Fjolskyldan er greinilega vanafost og finnst got ad vita hvar er gengid ad ollu, thetta var víst 4 árid í La Serena, 3 árid í húsinu sem vid leigdum og alla daga vorum vid á sama stad á strondinni. Virkadi samt fyrir mig thar sem thetta var fyrsta skiptid mitt tharna. Flestir dagarnir byrjudu med verslunarferd í mallinu sem var í gongufaeri eda í midbaenum. Hérna er allt rosa ódýrt og fullt ad tilbodum
Daemi:
2x sandalar fyrir 70 pesos – 2000 kr
Blackberry simi fyrir 1000 pesos - 26000 kr
50 bitar af sushi fyrir 160 pesos - 3500 kr
1 Zinger borgari (samt verri en a islandi) fyrir 10 pesos – 260 kr
Íthróttabolur úr godu efni med vasa fyrir ipodinn 50 pesos – 1300 kr
Flottir hlaupaskor fra Puma fyrir 180 pesos – 4000 kr
Kannski ekkert hraeódýrt en ódýrara en Mendoza og sko ódýrara en Ísland!!
Adra daga fór ég á morgnanna út ad skokka ein eda med annarri hvorri systur minni eda ad hjóla um hverfid. Einn daginn forum vid systir min a linuskautum um 11 leytid, forum sídan í sólbad á strondinni snerum heim ad borda og eyddum sidan ollum deginum a strondinni, I solinni eda í sjonum. Thetta olli sma bruna. Úps.
Á strondinni forum vid sídan á markadina í nágrenninu oft berfaett ad skoda handgerd armbond og ýmsa smáhluti. Ég keypti tharna oklaband sem oldurnar toku vist daginn eftir thegar ég fór í sjóinn. Svekkjandi svaka flott, keypti samt annad seinasta daginn hraeódýrt og ef ekki bara flottara. Keyptum okkur líka nokkud oft ávexti mixada saman I djus eda saman med mjolk (milkshake).
Hérna í Chile er allt fullt af solumonnum gangandi allan daginn medfram strandlengjunni ad selja saetabraud, skartgripi, ís, leikfong og jafnvel egg og sushi haha!
Sídan eru alla daga folk sem skemmtistadirnir ráda ad gefa frímida og afslátt á stadina og veislur. Nokkrar stelpur voru ad gefa túrtappa og domubindi, frekar spes gjafir á strondinni. Ég tók thatt í leik sem ein stelpan var tharna med, svona lukkuhjol sem eg átti ad snúa í Ipadinum. Ég var med heppnina med mer og vann leikinn sem thyddi ad eg vann 2 tennisspada merkta turtappafyrirtaeki! Heppin eg. Er ad paela ad byrja I tennis nuna, ég meina get ekki látid thessa frábaeru spada fara til spillis.
Ég frétti ad í fyrra hafi thau verid ad gefa sólgleraugu og kaffi á strondinni.
Einn daginn tókum vid tilbreytingu frá okkar annars yndislega stad á strondinni í La Serena og keyrdum í um halftima thangad til sást glitta í hálfgerda eyju útúr landi. Thurfti ad borga til ad komast inn á svaedid og hrikalega mikid af folki enda ekki skritid. Thessi strond er med hvitan sand, taert vatn og rólegar en skemmtilegar oldur. Fengum lika thennan frabaera dag med sterkri sól.
Á fostudagskvoldinu forum vid sídan út ad borda sushi vid fraendsystkinin. Lentum lika a thessum frábaera thjóni, kollum hann Jón. Í fyrstu gaf Jón einum af okkur happy hour thar sem vid vorum svo morg (6) okei ekkert thad morg. Pontudum kokteil sem var látinn ganga á allan hópinn. Pontudum og hann var svo elskulegur hann Jón ad vid gátum breytt rúllunum sem voru í tilbodinu og meira af theim venjulegu fyrir sushi-byrjendurna og sidan smakka hot rolls. Bidum sídan í um klst eftir sushinu. Greyid Jón var svo midur sin ad hann kom med thad sem var orugglega a matsedlinum sem forrettur. Kex og snakk med dýfu. Vorum svaka ánaegd med vidbótin thar sem vid vorum ekkert ótholinmód ad bída, kokkarnir voru eflaust a strondinni ad eltast vid krabba til ad fá krabbakjotid sem Jón var hikandi med ad segjast eiga. Sidan kom sushid, svona rosa gott og ég smakkadi eina rúllu sem er sú besta sem, eg hef smakkad. Jón var greinilega enn med samviskubit thar sem hann kom med 8 sushibita á disk sem vidbot fyrir bidina! ooog ad lokum kom hann med nýkreistan appelsínusafa í stóru glasi fyrir hvern og einn!
Mér hefur aldrei verid gefid eins mikid frítt á veitingarstad. Snilld.
Á laugardagskvoldinu fórum vid út ad dansa. Thar tók Franco, vinur bródur míns, thátt í danskeppni og vid komumst ad thvi ad tharna var dansad odruvisi en i Argentinu. Komumst líka í VIP herbergid med snakki og svona. Ég hafdi brunnid um daginn svo mer sveid í húdina, var eldraud á fótunum.
Gaman ad fá ad upplifa odruvisi fríi en madur er vanur. Metur svo miklu meira thad sem madur hefur. Eftir aedislega ferd med fjolskyldunni minni hérna í Argentinu, Vilche, forum vid af stad aftur til Mendoza eftir 10 daga paradís á strondinni. Heimleidin var ekki sídri spjolludum naestum allan tímann og spiludum. Fyndid ad spilid rommy er hérna líka. Komum sidan vid hja vinafolki fjolskyldunnar í Maitencillo. Áttu eina dóttir sem langadi ad fara sem skiptinemi svo thau voru forvitin ad vita um AFS og hvernig thetta gengur fyrir sig. Thau vilja líka taka ad sér skiptinema.
Vid bordudum hádegismat, spiludum blak á blakvellinum í bakgardinum og bordudum ferskjur beint af trjánum. Héldum ferdalaginu sidan áfram. Lentum í rigningu rétt hjá landamaerum Argentinu og Chile. Landslagid I rigningunni umkringd fjollunum minnti mig svolítid á Ísland verd ég ad segja. Leid eins og ég vaeri ad taka hringleidina um Ísland eda á leid uppí bústad.
Komum sídan um nóttina heim. Eins og ég hafdi vonast eftir hofdu 2 pakkar borist ad dyrum í byrjun janúar svo ég fór beint í thad ad opna thá. Frá mommu og co annars vegar og hins vegar frá ommu. Svo aedislegt ad verad tekid á móti manni svona vel haha.
Allavegana er ég í sumarfríi, ekkert annad á dofinni en ad njota frísins og sidan er stefnt á Chile í februar og Buenos Aires i mars. Sidan aetla eg ad byrja i eitthverjum dansi brádum og jafnvel ithrott sem a vist ad reyna a flesta vodva er eitthvad skylt fimleikum samt ekki, veit ekki hvad theta heitir a islensku.
Ég kvaddi mjog goda vinkonu mina frá Thyskalandi i dag sem eg mun sakna rosalega en ég er svo thakklat fyrir ad eiga heila 6 mánudi eftir! Vaeri samt alveg til i ad snua til Islands i eina viku og snua svo aftur hingad, thad vaeri aedi!
En vááá trúi ekki ad ég sé loksins ad klára theta OF OF OF langa blogg. Their sem hafa komist í gegnum allt thetta blog eiga eitthvad gott skilid svo ég aetla ad draga úr theim sem commenta og senda gladning! Koma svo!
(vá tók mig 2 ár ad skrifa thetta blogg paelidi i thvi)
Hlakka til ad sjá ykkur á thessu ári
Sumarkvedjur
Nati



















Vá hvað ég skemmti mér vel við að lesa þetta blogg :D Vildi að ég væri á sólarsdrönd borðandi mangó einmitt núna hehe. Haltu áfram að njóta lífsins þarna úti og bíð spennt eftir næsta bloggi :D
ReplyDeletekv. Þórhanna Inga
Snilldar blogg. Þetta lítur út fyrir að vera rosalega skemmtilegt þarna hjá þér!
ReplyDeleteKv. Viktoría
Þvílíkt ævintýri elsku Natalía, gleðilegt ár og knús frá okkur öllum og til hamingju með "stóru fréttirnar" :):)
ReplyDeleteDísa
Þvílíkt og annað eins! Ég væri allavena ekki að hata þetta :-D bíð spennt eftir að lesa meira!! :) langar helst bara að panta miða út og kíkja til þín í 2 mánuði! ljúfa líf :) Love!
ReplyDeleteGaman að lesa bloggið þitt elskan mín... vá ég þurfti að taka mér pásu 3svar til að ná að komast í gegnum allt bloggið :)) Gott að þú fékkst loksins pakkann... seinni 6 mán verða mun fljótari að líða en fyrri 6 ;) KNÚS mamma
ReplyDeleteHola Natalia ¿no tienes correo de contacto o face, o algo así? :/ me gustaria escribirte. mi face es FrutiFantastico, escribime, estoy haciendo una comunidad de islandeses en Argentina e islandeses que les gustan Argentina, me gustaria invitarte :)
ReplyDeletekristian
no se como encontre esta pagina, te extraño ya y mucho creo que fue toda una experiencia conocerte, y los momentos que me llevo quedan en el alma, un abarazo muy muy fuerte y hasta cuando nos tengamos que volver a ver, espero que el tiempo pase rapido y que lo lejano se haga cerca, gracias por ser como sos y por los momentos que nos dejaste no a mi si no a todos y lo que le diste a este lugar a este pais a esta provincia
ReplyDelete