JÆJA kæru lesendur!
Þið verðið að afsaka ef það verða eitthverjir tækniörðuleikar hér í byrjun þar sem ég er langt frá því að vera reyndur bloggari! En eins og kannski flestir vinir og vandamenn ættu að vita mun ég halda á vit ævintýranna og fara sem skiptinemi í heilt ár til Argentínu!
Þetta blogg verður fyrir ykkur heima á Íslandi (jafnt sem í öðrum löndum) að fá smá innsýn inn í heim skiptinemans í Suður-Ameríku. Ég vona ég eigi eftir að standa mig í þessum bloggheimi og ná að lýsa upplifun minni úti. En þá vil ég að þið verðið líka dugleg að láta vita af ykkur og skiljið kannski eftir smá comment, sama hvort sem þú sért vinur, ættingi, kunningji eða rataðir inn á þetta blogg af tilviljun !
En það er búið að vera mikill spenningur hérna frá því að ég tók þessa stóru ákvörðun og ég vona að hann eigi bara eftir að aukast og ég eigi eftir að upplifa nokkurn kvíða í þokkabót :)
Förinni er s.s. heitið þann 18. ágúst sem er bara rétt handan við hornið ef ég miða við seinustu vikur sem hafa liðið óvenju hratt! 56 dagar í brottför ef ég hef talið rétt, sem er nákvæmlega ekkert !!
Fékk einmitt sent flugplanið í dag þegar við fjölskyldan lentum í bongóblíðu á Keflarvíkurflugvelli eftir frábæra ferð til Svíþjóðar.
Flugáætlunin er eftirfarandi:
1. Mætum á Keflarvíkurflugvöll 18 ágúst, vélin fer í loft kl. 10:30 (ef gert er ráð fyrir engum seinkunum aha)
2. Lendum í New York kl. 12:30 á staðartíma
3. 12:30 - 16:20 s.s. um 3 tíma bið á John F. Kennedy okei gæti verið verra
4. Lendum í Atlanta kl. 19:15 á staðartíma
5. Bið í um 1 klst á flugvellinum í Atlanta
6. Flug frá 20:50 - 08:00 þar sem við lendum í BUENOS AIRES!
Þess má geta að ferðalagið tekur samtals 21 klst samkvæmt staðartíma og óháð seinkunum sem á vonandi eftir að þjappa okkur 9 krökkunum sem ferðumst saman til Argentinu vel saman.
Hef ekki hugmynd um hvar ég verð í Argentinu og er ekki enn búin að heyra neitt um hvernig gengur að finna fjölskyldu þarna úti.. en þetta er bara eitt af því sem gerir þetta bara meira spennandi og ég vona að ég fái fjölskylduna bara eitthvað stuttu fyrir brottför þótt ég sé að deyja úr forvitni eins og alltaf hhaha!
LÆT YKKUR VITA UM LEIÐ OG ÉG FRÉTTI EITTHVAÐ!
Muna svo að commenta!
oog plís ekki hætta að skoða bloggið mitt þó þetta hafi verið óspennandi 1. færsla þetta á eftir að skána ég lofa!
Buenos noche,
Natalía

