Saturday, July 9, 2011

To a brave man, good and bad luck are like his left and right hand. He uses both

Góða kvöldið :)

Finnst samt frekar rangt að segja það þar sem sólin er enn hátt á lofti hérna í Borgarfirðinum. Búið að vera heiðskýrt með smá vindi reyndar. Það var orðið alltof langt síðan ég kom hingað seinast (Febrúar) svo ég var dauðfegin þegar við ákváðum að fara. Búin að nota daginn í að slaka á hérna uppi á Sturlu-Reykjum með mangó, næla mér í smá tan (þó bara á framhluta þar sem ég sat allan tímann og las fyrir fjarnámið) á meðan fóru mamma og Skúli í golf hjá gamla gamla. Þau gömlu komin í pottinn núna og ég látin þjóna þeim með vínberum og víni, það er aldeilis!
En að öðru.. þar sem ég þessi færsla á ekki að snúast um veðrið úti og bústaðaferð..

Ágætlega vondar og góðar fréttir:

*Möguleg seinkun á brottför, myndum þá missa mánuð af dvölinni úti..
*Komin með fylki úti!! MENDOZA

Þannig var það að við fengum sendan póst frá AFS stuttu eftir að við vorum búin að fá flugáætlunina út. Þar var skýrt frá því að það verður svokölluð 'seinni koma' til Argentinu nú í ár. Sem sagt ein koma 19. ágúst og önnur um miðjan september og þetta hefur áhrif á ALLA AFS skiptinema sem eru á leiðinni til Argentinu ekki bara okkur íslendingana. Ástæðan var sögð sú að það eru komin hertar vegabréfsreglur þar í landi, seinkun á vegabréfsafgreiðslu sendiráða, aukin ásókn nema til Argentínu og fleira.
Nú er bara um að gera að vera jákvæður og vona að við förum í ágúst, annars er það bara að redda sér vinnu í mánuð og vinna á fullu á meðan hinir eru í skóla :)

Alltaf gott að byrja á slæmu fréttunum, því ég er með FRÁBÆRAR fréttir!
NEI er ekki komin með fjölskyldu enn.. en ég er komin með fylki! sem gerir þetta svo miklu raunverulegra :D
Þetta er stórt fylki sem heitir Mendoza og er í miðri Argentinu nálægt landamærum Chile
Mendoza sýnist mér vera voða fjölbreytt. Sé myndir á netinu af skíðasvæðum, stærsta tindi Ameríku, borgum, stórum vínökrum, fallegri náttúru, river rafting og fleiru :)
Hitastigið er breytilegt og getur farið upp í 33° á sumrin og niður í 2° á veturna.
Var heldur ekkert hata að heyra núna í fréttunum að leikir í Copa America voru spilaðir núna um helgina á fótboltaleikvanginum í Mendoza, reyndar var Brynjar búinn að segja mer frá þessum velli sem þýðir: stórt fótboltalið :D
Þau eru tvö sem fara með mér, stelpa frá Bandaríkjunum og strákur frá Frakklandi.



















































Nú er bara að bretta upp ermar fyrir þetta fjarnám, er alltof mikið eftirá.. og njóta sumarins :)

Hasta la vista!

Natalía

2 comments: